The Search

The Search

Nice

sveitarfélag í Frakklandi

Nice er borg í Suður-Frakklandi við Miðjarðarhafið, milli Marseille í Frakklandi og Genóa á Ítalíu. Borgin er í Provence-Alpes-Côte d'Azur-héraði og er fimmta stærsta borg Frakklands með rúmlega 340 þúsund íbúa innan borgarmarkanna (2017) en tæp 1,4 milljón manns búa á stórborgarsvæðinu. Nice er vinsæll sumarleyfisstaður jafnt Frakka sem erlendra ferðamanna. Áætlað er að um 4 milljónir ferðamanna sæki borgina heim á ári hverju og flugvöllurinn, sem stendur á landfyllingu við ströndina, er einn sá annasamasti í Frakklandi. Hershöfðinginn og stjórnmálamaðurinn Garibaldi, stundum kallaður landsfaðir Ítalíu, fæddist í Nice. Á hæðinni fyrir ofan miðbæ Nice stendur kirkjugarður á rústum gamals virkis sem byggt var á hæðinni á 16. öld. Í kirkjugarðinum hvílir René Goscinny, höfundur myndasagnanna um Ástrík gallvaska.

Wikipedia · CC BY-SA

nice — Nice er borg í Suður-Frakklandi við Miðjarðarhafið, milli Marseille í Frakklandi og Genóa á Ítalíu.

dictionary.aplusz.app