The Search
Sólarsella
Sólarsella, ljósspennurafhlaða eða sólarrafhlaða er sá hlutur sem breytir sólarorku beint yfir í raforku með svokallaðri ljósspennuaðferð. Algengast er að sólarsellur séu aðallega úr kísil (Si), annað algengasta efni jarðskorpunnar. Aðal notkun sólarsella nú til dags er á afskekktum stöðum þar sem annars konar raforkuframleiðsla myndi vera of dýr. Stór sólar-raforkuver eru hins vegar einnig til staðar í löndum eins og Bandaríkjunum, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni og Sviss. Sólar-raforkuver eru mjög mismunand af stærð og gerð. Þau hafa uppsett afl frá 10-60 MW en gert er ráð fyrir um 150 MW sólarraforkuveri á næstu árum.
Wikipedia · CC BY-SA
sólarsella — Sólarsella, ljósspennurafhlaða eða sólarrafhlaða er sá hlutur sem breytir sólarorku beint yfir í raforku með svokallaðri ljósspennuaðferð.
dictionary.aplusz.app