The Search
Singapúr
borgríki í Suðaustur-Asíu
Singapúr er borgríki á eyju við suðurodda Malakkaskaga í Suðaustur-Asíu. Landið liggur sunnan við malasíska héraðið Johor og norðan við Riau-eyjar í Indónesíu. Nafnið er dregið af tveimur orðum úr sanskrít singa sem merkir „ljón“ og pura sem merkir „borg“. Singapúr gengur líka undir sínu gamla malasíska nafni Temasek. Landið er mjög þéttbýlt og borgin nær yfir svo til allt landsvæði þess. Land Singapúr hefur verið stækkað með landfyllingum í sjó.
Wikipedia · CC BY-SA
singapore — Singapúr er borgríki á eyju við suðurodda Malakkaskaga í Suðaustur-Asíu.
dictionary.aplusz.app